1390 milljónir fari til biskupsstofu á meðan að verið sé að loka neyðarmóttöku naugðana,,,, er það ekki tvöfaldur sigur fyrir biskupstofu,,, meiri peningar,, meira hægt að nauðga,,,

þoli þetta ekki mikið lengur,, óþolandi skammsýni að hafa þessa kirkju,, af hverju ekki að ríkisstyrkja lions bara,,,eru þeir ekki hressir og skemmtilegir eins og Jesú,,

Nýtt upphaf,,,

Ég hef verið latur að blogga þessi undanfarin misseri, hef ekki haft mikið að segja svosem,,, Facebook er líka dálítið búið að drepa bloggið,, en ég ætla mér ekki að hætta,, ekki enn að minnsta kosti,, þetta er ágætis dagbók sem gaman er að lesa í sjálfur öðru hvoru,,, Við Herb brugðum okkur í leikhús á föstudaginn, sáum Fjölskylduna, óhætt að mæla með henni ef þið eigið fjóra tíma,, svolítið mellodramatískt og langdregið, en vel leikið og skemmtilegt,,, ekkert nýtt samt,,,  Fór á Rjúpnaveiðar á laugardagsmorguninn með Torfa Ottó og Kristjáni,, fengum ekki neitt, skítaveður og rugl,,, svo út að borða á VOX,, árstíðamenu sem var svona la la ,, alltof dýrt,, og brimsalt hreindýr,, allt rann þetta þó niður,,, Gæsin var fín,,, félagskapurinn var hins vega á heimsmælikvarða,,, ég var bara þreyttur og náði ekki að drekka mig almennileag fullan, það var verra,,,,

 

Jæja ég set meira hér inn þegar ég nenni að fara að elda meira,,,

 

D


jæja,, það er svo mikið búið að gerast síðan ég fór á þennan Miðfellstind að ég nenni ekki að reifa það hér, nema

ferðalag hringinn ömurlegt

skipti um vinnustað

mía tveggja ára

tók til

eignaðist hund

hann heitir Miles Davies

hann er fatlaður

hætti að elda

missti mojoið

fékk það aftur

missti það aftur

þroskaðist mikið

pissaði

horfði á video

drakk mikið

fór í sumarbústað

ofl ofl ofl,,,

hmmmm,,,, kannski ég ætti að fara að sinna þessari síðu eitthvað betur,,,, facebook er soldið að drepa bloggið,,,, anyways, þá mæli ég með nýju plötunni með hermigerfli sérstaklega lagi sex,,, og átta,,, og riceboy sleeps líka,,, ánægður með það ,,,

 

D


Miðfellstindur 1441 m, 41 km,,,, 19 klst,,,

Ég hef lítið annað hugsað um síðan ég fór  á Hvannadalshnjúk í vor en fjallamennsku og því hafði ég beðið þessa dags lengi,sumarsólstöður og Miðfellstindur í Öræfajökli.  3656016671_8df415aa8d Það er ekki að furða að þessi dagsetning hafi verið valin því lengri verða dagleiðirnar varla og því brýnt að nota sólarljósið,  ég fór á Föstudaginn eftir vinnu og svaf bara í bílnum, hitti samferðafólk mitt á stuttum fundi í Skaftafelli um kvöldið og við byrjðum að ganga um 4 um nóttina,  inn Morsárdal um 13 km inn að fjalli. inn í svonefndri kjós var stoppað stutt og hituð

  3656019061_8cdb17bd99

 

 

 

 

 

 

 súpa og egg áður en lagt var á fjallið,  það er 3656814114_c6e397dcf8 3656017635_d69e88ddf2 gengið upp sk meingil inní hnútudal og uppúr honum á brattri fönn, ég við komum uppúr hnútudal tók við ansi ógnvekjandi þverun fjallsins uppað þumli og ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að taka upp myndavélina til að taka myndir þarna, ég fékk því myndir frá samferðarfélaga mínum þarna.  Þegar þessi þverun er búin erum við komin uppá vatnajökul og styttist í að við komumst á 3656814508_04bf913536 toppinn, það eru fáar sprungur á þessu svæði en við fórum samt í línu

  3656813748_d6c5364a34

 og gengum þannig restina, það var drjúgur spotti á toppinn en þegar þangaðvar komið var örlítið haft á milli fjalla sem þurfti að fara yfir ca hálfsmeters breitt og hengiflug sitt hvoru megin, það var stoppað í tíu mínútur til að taka myndir og svo haldið sömu leið niður, við fórum síðan Skaftafellsheiðina til baka sem er skemmtilegri leið út úr morsárdalnum og það var gott að komast í sturtu og að sofa eftir langan dag.

3656020093_30bbdccda5

Daði


Hvítlauks og rósmarín Humar frá Gísla,,,

Við fjölskyldan erum búin að hafa það ótrúlega gott í Vestmannaeyjum undanfarna 5 daga,, komum hér til að styðja elstu dóttur okkar í Pæjumótinu sem hefði mátt ganga betur, 12 sæti af 14 verður að teljast frekar slakur árangur,,, en kannski eru úrslitin aukaatriði,,,, aðalmálið er reynslan sem af þessu fæst, samveran og góða veðrið.   Hér erum við búin að vera í sundi, borða góðan mat, gekk á Heimaklett og ætlaði út í Ystaklett en vildi ekki fara í reypin án aðstoðar, komst því bara út í skarðið, leiðin til baka var ótrúlega erfið, austurhliðin á Heimakletti er ekkert grín,,, í gær var ég með humar frá Gísla sem er sá besti í heimi,,, Veiddur við Eldey og stór og safaríkur.

ég hef kannski bloggað um þetta hér áður en læt þetta flakka,

Humarinn er skorinn í tvennt eftir endilöngu og garnhreinsaður, ég legg hann síðan í ofnskúffu með kjöthliðina upp, salta og pipra. Sker síðan smátt slatta hvítlauk, slatta rósmarín, hvítlauksrjómaost ca hálfa dollu, og ca 100 gr ísl smjör og maka á humarinn.  Sett undir grillið í ofninum í svona 10 mín á 200 eða þar til hann er orðinn gullinn að ofan, með þessu er síðan hvítlauksbrauð og gott salat, já og gott hvítvín,

adios,,,


Ég hef komist að því,,,,

Já ég hef komist að því af hverju ég er áhugalaus í lífinu,, ég nenni ekki lengur að blogga, ég nenni varla lengur að elda mat og það sem er ótrúlegast er að ég nenni varla lengur að drekka,, eitthvað sem ég bjóst aldrei við,, Ég hef alla tíð verið áhugasamur um flesta hluti og duglegur að rækta þá en nú er það ekki svo,,, það er vegna þess að ég er rúinn trausti, ég er rúinn gleði hér á landi, ég er í áfalli.  Allt sem ég hef gert til að byggja mig upp efnislega er í klessu, allt traust til fólks er farið ég finn það sterkt í öllu samfélaginu,, ég er viss um að allir ljúga og pretta og svíkja,, ég vil ekki vera hér lengur,,,

ég verð að fara og finna stað þar sem mér finnst aftur gaman að drekka,,,

 

Daði


Vakna snemma,,,,,

Mía er orðin eitt af þessum börnum sem vakna fyrir allar aldir.  Ég er ný yfirleitt frekar fyrir að vakna snemma og svona en þetta rugl er komið út úr hófi,, hún er bara hress kl 6 á morgnana og með hennar skap er ómögulegt að fá hana aftur til að sofna.

Við erum búin að gera margt frá síðustu færslu,, sumarbústaður,, veðrið er búið að vera geggjað, málverkasýning á Eyrabakka,  góður matur og svona.  Ég er búinn að klára umsóknir í Köben og Árósum og nú er bara að bíða og sjá, eg er merkilega rólegur yfir þessu, í fyrra var ég að vonast efitr að komast inn á næstu árum, en núna er mér alveg sama, það er hægt að gera margt annað í lífinu en að vera í skóla og blankur.

 

Daði


Reykjaborg 286 Metrar

Skítaveður eins og alltaf....

Helgafell 215 metrar og Miðfellstindur í Júní.

Nú geri ég ekki annað en að láta mig dreyma um fjöll, gekk á Helgafell í vangefnu veðri um daginn,, og hef skráð mig í ferð á Miðfellstind 20 júní.  Hlakka mikið til. Ekki meira að segja í bili.

Daði


Úlfarsfell... 295 metrar.

Einhverskonar fjallbaktería hefur heltekið mig.  ég hef svosem ekki úr miklu að moða hér á kvöldin svo ég brá mér á Úlfarsfellið á þriðjudagskvöldið.  Lítið fell ekki alveg fjall og vegur alla leið á toppinn,, ekki merkileg fjallamennska það,, en ég fékk smá svita og náttúru út úr þessu,, í kvöld er það Helgafell..... ég er strax farinn að plana næsta stóra fjall til að fara á en það er miðfellstindur í Öræfajökli, ekki langt frá Hvannadalshnjúki.  þetta verður um 20 tíma ganga eða svo og mun erfiðari en hnjúkurinn býst ég við ,, svona af myndunum að dæma amk.  auk þess á ég mér þann draum núna að ganga á alla tindana í Breiðdal, helst alla í einni ferð og gista þá á fjalli því það er ekki hægt að gera þetta á einum degi svo mikið er víst.  Ég þarf bara að sannfæra Herborgu.

 

Nína Sif fallega

 

Annars hefur lífið verið gott, það er brjálað að gera í vinnu, ég hef aldrei sett jafn mikið af implöntum og er búinn að ná markmiðinu sem ég setti mér fyrir þetta ár og aðeins Mai kominn.  Auk þess er mikið að gera að öðru leyti.

Börnin dafna, og konan mín er góð við mig,, svona yfirleitt.   Mía er byrjuð á nýjum leikskóla sem ég er afar sáttur við, hún sýnir miklar framfarir í máli og hreyfingu, auk þess sem við erum komin með þráhyggju fyrir að púsla.  

 

Daði


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband